Mega Zipline: takið flugið saman!
Hraði, adrenalín og stórbrotið útsýni hjá Mega Zipline í Hveragerði fær hópurinn að svífa yfir gil, fossa og íslenska náttúru í ævintýri sem gleymist seint.
Mega Zipline er fyrir hópa sem vilja prófa eitthvað aðeins öðruvísi og bæta smá spennu við daginn. Ævintýrið hefst við Reykjadal í Hveragerði áður en haldið er upp að Svartagljúfri, þar sem kílómetra löng sviflínan bíður.
Tvær línur liggja hlið við hlið svo tveir félagar geta tekið flugið saman og þá er bara spurning hver þorir að horfa niður! Á leiðinni svífið þið yfir stórbrotið gljúfrið með fossana og náttúruna allt í kring.
Hægt er að velja á milli tveggja mismunandi upplifana. Frjáls eins og fuglinn er þægilegri útfærsla þar sem flogið er sitjandi og hægt að njóta útsýnisins, en þeir sem vilja meira adrenalín geta valið Fljótur eins og fálkinn og flogið liggjandi með höfuðið á undan.
Fyrir þá allra hugrökkustu er einnig hægt að bæta við 13 metra frjálsu falli tilvalið fyrir þá sem segist aldrei vera hrædd við neitt!
Spennandi afþreying sem sameinar íslenska náttúru, adrenalín og skemmtilega áskorun og gefur hópnum upplifun sem verður eflaust mikið rædd þegar aftur er komið á vinnustaðinn.
Möguleikar í boði
• Um 1 km löng sviflína yfir Svartagljúfur
• Tvær samhliða línur svo tveir geta flogið saman
• Frjáls eins og fuglinn (flogið sitjandi)
• Fljótur eins og fálkinn (flogið liggjandi)
• 13 metra frjálst fall fyrir þá sem vilja auka adrenalínið
• Öryggisbúnaður og leiðsögn frá starfsfólki
• Stórbrotið útsýni yfir gil, fossa og náttúruna við Hveragerði
Staðsetning: Árhólar 1, 810 Hveragerði
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.

